Jæja nú er komið að lokum síðasta dags hérna hjá okkur í Noregi
Því á morgum munum við leggja af stað heim, en samt með smá aukaflugtúr( mér til mikillar ánægju
eða þannig)
Því við munum fljúga til Stokkhólms og svo til Íslands.
En ferðin er búinn að vera alveg meiriháttar( fyrir utan smá óhapp hjá einum ferðafélaga en hann kemst vonandi fljólega heim)
Um helgina fórum við sem sagt upp í Wadhal og gistum þar.VÁ hvað það er fallegt þar
Síðan vöknuðum við snemma á sunnudeginum og lögðum af stað til Lillehammer um 9 leitið
til að fara að sjá úrslitaleikina en þar sem ekki var búiða að opna Handboltahöllina skelltum við okkur yfir í næstu höll og þar vorum við svo heppin að lenda á leik í íshokký rosa stemmning
Eftir leikina lögðum við að stað til Oslo með smá úturdúr því við fórum til Gjövík og þaðan til Oslo.Ferðin gekk mjög vel ÞANGAÐ til við vorum komin inn í Osló því þá vissi bílstjórinn(Sem var enginn annar en Hjalli)ekki alveg hvar við vorum og því hófst mikil leit að komast heim( sem aðeins tók um 20 mín).Það hafðist þó að lokum og þá beið okkar frábær matur og ískaldur BJÓR.
Síðan í gær lá leið okkar til Brunby að heimsækja Kai og Önju. þar stoppuðum við í nokkurn tíma.
Dagurinn í dag var tekinn rólega, aðeins kíkt í bæinn( Og þar gerði ég nýtt met því ég fór ekkert inn í HM) Er að vísu búin að fara í nokkrar HM verslanir á ýmsum stöðum hérna í Noregi t.d. Í Þrándheimi,Oslo og Lillehammer.
Jæja nú nenni ég ekki að skrifa meira í kvöld.
Ég mun setja inn myndir þegar ég er komin heim.
Bið að heilsa öllum og Vala þú og Viktor fáið spes kveðju frá mér og Hjalla og vonandi farið þið að komast heim. Við verðum sennilega bara á undan ykkur heim.
Enn og aftur ALLIR að muna svo að kvitta.